Alþjóðajarðhitasambandið (IGA)

Formleg stofnun IGA átti sér stað árið 1988. Stofnfundur IGA var haldin í Casa Nuevo á Ítalíu, í boði ENEL. Hann sóttu 55 jarðhitaáhugamenn víða að úr heiminum. Alþjóðleg undirbúningsnefnd annaðist allan undirbúning að stofnun IGA. Nefndin var sett á stofn af bandaríska jarðhitafélaginu Geothermal Resources Council Inc. (GRC) árið 1986 á aðalfundi félagsins í Reno. Á stofnfundinum voru markmið, samþykktir og kosningafyrirkomulag fyrir IGA samþykktar og fyrsta stjórn félagsins kosin. Hún taldi 30 jarðhitamenn víða að úr heiminum. Bandaríkjamaðurinn James Combs var kjörinn fyrsti forseti IGA. Jafnframt var ákveðið að halda alþjóðlegar jarðhitaráðstefnur á 5 ára fresti og var sú fyrsta haldin í Flórenz á Ítalíu 1995. Önnur í röð slíkra ráðstefna var alþjóðlega ráðstefnan í Beppu/Morioka, Japan árið 2000, sú þriðja í Antalya, Tyrklandi árið 2005, og sú fjórða verður haldin á Bali í Indónesíu 2010.

IGA gefur einnig út fréttablað um jarðhita kallað IGA News, sem kemur út ársfjórðungslega og fjallar um jarðhitamál, væntanlega fundi, ráðstefnur og annað fréttnæmt varðandi jarðhita um heim allan. IGA félagar fá fréttablaðið ókeypis og ódýra áskrift að Geothermics.

 

Íslenska Jarðhitafélagið er eitt af 17 aðildarfélögum IGA og nýtur því sömu skilmála og aðrir félagar þess.

Árin 2004 til 2010 annast Samorka rekstur skrifstofu IGA, í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið. Framkvæmdastjóri samtakanna er Árni Ragnarsson.


Frekari upplýsingar um IGA fást hér, á vef samtakanna.