Jarðhitafélagið styrkir doktorsnema

23.8.2011 Gústaf Skúlason Árin 2010-2012 styrkir Jarðhitafélag Íslands árlega íslenskan doktorsnema í jarðhitatengdum fræðum um allt að kr. 350.000, til að sækja alþjóðlega jarðhitaráðstefnu. Fimm sterkar umsóknir bárust um styrkinn í ár. Niðurstaða stjórnar varð að veita styrkinn að þessu sinni Ásbjörgu Kristinsdóttur, doktorsnema við verkfræði- og viðskiptafræðideildir Massachussets Institute of Technology (MIT). Doktorsverkefni Ásbjargar þótti sérstaklega áhugavert og hagnýtt, en þar leggur hún áherslu á áhættugreiningu og ákvarðanatöku fyrir virkjanaframkvæmdir og miðar að því að kortleggja þær áhættur sem geta haft áhrif á framgang virkjanaframkvæmda, á sviði gæða, kostnaðar og tíma. Ásbjörg mun sækja European Future Energy Forum í Genf í Sviss dagana 10.-12. október og mun hún m.a. kynna rannsókn sína þar. 
 
Ásbjörg lauk  M.Sc. prófi í byggingarverkfræði frá MIT árið 2008 og MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management sama ár. Árið 2002 lauk hún B.Sc. prófi í véla- og iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Hún starfaði hjá Landsvirkjun við undirbúning og framkvæmd virkjana á árunum 2002-2006 og hefur einnig m.a. starfað fyrir Amgen Inc. við framkvæmdastjórnun í Puerto Rico.
 
Stjórn Jarðhitafélagsins þakkar öllum umsækjendum fyrir þeirra umsóknir og hvetur þau til að sækja aftur um að ári, ef við á.