Aðalfundur og Vorþing Jarðhitafélagsins 14. apríl 2010
23.3.2010Gústaf Skúlason
Miðvikudaginn 14. apríl verður aðalfundur Jarðhitafélags Íslands haldinn, í Víðgelmi Grensásvegi 9, kl. 13:30. Vorþing og 10 ára afmælisþing félagsins verður haldið á sama stað kl. 14:30. Þar verður fjallað um regluverkið tengt jarðhitavirkjunum, skipulags-, mats- og leyfismál og mun umhverfisráðherra m.a. ávarpa þingið. Sjá dagskrá aðalfundar Jarðhitafélagsins 2010. Sjá dagskrá Vorþings og 10 ára afmælisþings Jarðhitafélagsins 2010.